26 júní, 2006

Gazalegur hryðjuverkamaður

Í TI Tech er margt um útlendinginn. Við komum alls staðar frá og erum mjög ólík. Einn þeirra sem eru með mér í japönskunámskeiðinu er Dia. Hann er palestínskur, en ekki nóg með það, hann er frá Gaza svæðinu.

Dia hefur búið í Tókýó í þrjú ár og kann varla stakt orð í japönsku. Hann segist ekki vilja læra tungumálið en prófessorinn hans hafi skipað honum að sitja námskeiðið. Dia er voðalega óþekkur í tímum. Hann geispar stanslaust og teygir sig, en hvort tveggja þykir mikil ókurteisi hér. Hann svarar spurningum kennaranna oftast á ensku og lærir aldrei heima. Hann skrópar oft í tíma og lýgur að kennaranum að hann hafi öðrum hnöppum að hneppa. Svo komum við að honum þar sem hann situr úti í góða veðrinu og smjattar á ís.

Í frímínútum reynir Dia oft að fitja upp á samræðum um Mið-Austurlönd, þá sérstaklega um Palestínu og hryðjuverk. Hann veit ástæðurnar að baki öllum hryðjuverkum í heiminum og hefur óteljandi samsæriskenningar um þau öll.

Stundum talar hann um viðskiptin sem hann á í við Rússa með gull. Hann segist þegar hafa grætt heilmikið á því.

Ensku, bandarísku og spænsku nemendurnir eru í miklu uppáhaldi hjá Dia því þau hafa upplifað hryðjuverkaárásir í sínu heimalandi. Hann eltir þau um allt og spyr þau hvað þeim finnist um “hryðjuverka-þetta” og “hryðjuverka-hitt”. Ekki get ég sagt að ég sé vinsæl hjá Dia, enda kemst Ísland ekki nálægt því að vera eins spennandi og Gaza!

Ein vinkona mín hér er frá Spáni. Hún er afskaplega taugaveikluð og bregst óendanlega illa við hvers kyns ólukku. Ég held ég hafi aldrei kynnst annari eins manneskju. Hún situr við hliðina á Dia í tímum og er því neydd til að hlusta á hann meðan hann lætur móðann mása. Með hverjum deginum magnast stressið í henni. Verri sessunaut gæti hún varla hafað valið sér.

Dia er að læra efnaverkfræði með áherslu á TNT og dýnamít

4 Comments:

Blogger sylvia said...

Það er kannski ágætt að hann stundi námið ekki af áfergju...

...og borði frekar ís en að sitja í TNT fyrirlestrum...

8:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gvuð minn álmáttugur og heilagur Alla!!!!
ert þú sú eina sem finnst þetta vera eithvað undarlegt !!!!!

8:29 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey!!! ætti ég að fara í missjón þegar ég kem...tæli þennan hryðjuverkamann-og sker af honum þumalputtana (erfitt að búa til sprengjur með enga þumla!!!) - fæ kannski ráð hjá vinkonu okkar Bristow!:)

12:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Guðný viltu halda þig frá þessum manni.... er ekki alveg sama þar sem að uppáhalds umræðan er hriðjuverk og hann er að læra efnaverkfræði.
Vertu ekkert of mikið að segja honum frá Íslandi. Gæti kveikt á einhverjum hugmyndum hjá honum :)
Og FYI taskan er komin!

7:45 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home